5.2.2008 | 11:09
Loksins!
Það kom að því að ég fengi lengra vetrarveður en 2 daga! Hér fullt af snjó enda búið að snjóa síðan á fimmtudag, í dag e svo frost og þoka. Verð að viðurkenna að mér finnst þetta yndislegt.
Við erum að fara að flytja, erum búin að kaupa okkur hús á Teigabóli (í sveitinni!) sem er fokhelt svo það er mikil vinna framundan. Ætlum að leigja í Holti til að byrja með en það er næsti bær við Teigaból. Ég á alveg eins von á því að fara þangað í vikunni en það fer efir vinnunni hjá Einari. Þann dag sem hann þarf ekki að vinna verður fenginn bíll og flutt! Þar með verð ég lögleg sveitakona
Annars er lifið rólegt og yndislegt hjá mér, er bara heima að dóla mér með lillanum og svo báðum pjökkunum mínum eftir að sá eldri kemur heim. Mér finnst tíminn alltof fljótur að líða enda er Ragnar Sölvi orðinn 8 mánaða! Ég fer reyndar ekki að vinna aftur fyrr en í endaðan júlí en miðað við tímann hingað til þá er ekki langt þangað til...
Þorrablótið á laugardaginn var GEGGJAÐ!!!! 3ja blótið mitt hér og það laaaaaaang besta. Við erum í nefnd á næsta ári og ef við eigum að halda þessari gleði við þá bíður okkar mikil vinna á næsta ári.
Farin að eta kjetsúpuna síðan í gær... Ekkert saltkjet hér í dag...
Um bloggið
Það held ég nú...
Tenglar
Hitt og þetta
- Hvernig er veðrið?
- Mogginn, ómissandi!
- Ljósmæðravefurinn gagnelgt fyrir þá sem þetta varðar!
Barnabloggin
- Alexander Freyr Örvarsson, frændi sona minna
- Sigurður Alex Sonur Sirrýjar og Sigurgeirs
- Anton Breki, bróðir Venna
- Hilmir Þór, bróðursonur minn Sonur Hafsteins og Eyrúnar
- Ragnar Sölvi, litli prinsinn minn Krúttið mitt
- Venni minn, frumburðurinn Yndislegastur
Blogg en ekki Moggablogg
- Gréta Aðalsteins Fellamær
- Ættarbloggið Brunnastaðaættin
- Ásta Þöll í Kóngsins Köben Yndisleg vinkona
- Strákarnir
- Sigríður sveitalúði
- Þórdís systir bestasta besta!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hlakka til að koma í heimsókn í sveitina til ykkar
Gurra (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 11:24
Mmmmm...kjotsupa..
Thordis (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 04:35
Bara að kvitta fyrir lesturinn
Helga Dögg (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 11:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.